Forsíða
Félag markþjálfunar
Markþjálfun hér og markþjálfun þar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna María Þorvaldsdóttir   
Fimmtudagur, 05 Janúar 2012 19:49

Fyrsti fundur ársins í samstarfi félagsins og Dokkunnar verður fimmtudaginn 19.janúar n.k.

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Arion Banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.

Yfirskrift fundarins er: Markþjálfun hér og markþjálfun þar!

Þær Arndís Ósk Jónsdóttir markþjálfi menntuð í Bretlandi veltir upp spurningunni eru íslenskir stjórnendur með aðrar þjálfunarþarfir en erlendir stjórnendur?

og

María Lovísa Árnadóttir certified transformational life coach deilir reynslu sinni af því hvernig frumkvöðlar/stjórnendur í Bandaríkjunum nýta sér markþjálfun.

Þær Arndís Ósk og María Lovísa hafa báðar starfað á erlendum vettvangi sem markþjálfar og því fróðlegt að heyra reynslu þeirra á því hvernig erlendir stjórnendur nýta sér markþjálfun sem er að ryðja sér til rúms á Íslandi.

 

Skráning á fundinn er nauðsynleg fyrir gestgjafa til að áætla fjölda. Skráning fer fram á heimasíðu Dokkunnar með því að smella hér. Vakin er athygli á því að nauðsynlegt er að skrá sig fyrst inn á síðuna til þess að geta skráð sig, en það er nóg að skrá sig á síðuna einu sinni með notendanafni og lykilorði.

 

LAST_UPDATED2
 
Fræðslufundur-nóvember 2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna María Þorvaldsdóttir   
Föstudagur, 11 Nóvember 2011 13:40

    Næsti fundur í samstarfi félags markþjálfunar á Íslandi og Dokkunnar verður 

    Fimmtudaginn 17. nóvember kl 08:30 - 10.00 í ráðstefnusal Samskipa við Kjalarvog, sjá lýsingu hér

    Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl 08.30, fundurinn hefst kl 08.45.

    Er markþjálfun hentugur kostur og hvernig eru fyrirtæki að nýta sér hana?


    Dagskrá:


    Hvaða þekkingu, reynslu og alþjóðavottun er betra að stjórnendamarkþjálfar hafi? Hvað er alþjóðavottun?

    Anna María Þorvaldsdóttir ACC stjórnendamarkþjálfi fer yfir helstu kröfur sem markþjálfar þurfa uppfylla til að öðlast alþjóðavottun frá Vottunarfyrirtækinu International Coach Federation (ICF)

    Hvernig eru Samskip að nota markþjálfun?

    Auður Þórhallsdóttir fræðslustjóri Samskipa segir hvernig markþjálfun er notuð til að laða fram kjörframmistöðu starfsmanna.

    Birna Ragnarsdóttir forstöðumaður viðskiptaþjónstu segir reynslu sína af stjórnendamarkþjálfun.

    Skráning á fundinn hér.

     

     

 

LAST_UPDATED2
 
September 2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna María Þorvaldsdóttir   
Þriðjudagur, 13 September 2011 11:50

Stjórnandi í sporum markþjálfans ( Manager as coach)

Föstudagur 23. september 2011 kl.8:15-9:45

Staðsetning: Opni Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi  2. hæð, "Mars", stofu M215

 ATH ný staðsetning á fundinum.

Ron Hopkins –Stjórnendaþjálfari frá Bretlandi

Á morgunverðafundinum verður blanda af framsögu og velt upp með okkur spurningum eins og; hvernig stjórnandi getur verið líka markþjálfi? Hvaða hæfni, tækni getur stjórnandi nýtt sér úr aðferðafræði markþjálfunar til að ná meiri árangri í starfi? Virkar aðferðarfræði markþjálfunar hjá stjórnendum til að fá meira út úr sínu starfsfólki og verða betri stjórnandi?

Ron Hopkins:
Hefur yfir 25 ára reynslu sem stjórnendaþjálfari og hefur unnið með æðstu stjórnendum úr fjölbreyttum geirum atvinnulífsins, m.a lyfafyrirtækjum, fjármálafyrirtækjum, fölmiðlum, verslun, þjónustu ofl.

Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn 23.september.  Skráning á fundinn 23.september er hér

LAST_UPDATED2
 
Október 2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna María Þorvaldsdóttir   
Fimmtudagur, 29 September 2011 16:06

Kæru félagar.

 

Unnið er hörðum höndum að uppfærslu heimasíðu félagsins og mun hún líta dagsins ljós eigi síðar en strax á nýju ári. Hugmyndin á bakvið síðuna er að nýta hana betur sem markaðstól fyrir markþjálfun og markþjálfa og gera hana almennt aðlaðandi fyrir almenning. Því viljum við endilega birta greinar sem gagnast fólki og gefa einnig innsýn í hvað marþjálfun er og hvað hún hefur uppá að bjóða. Til þess að opna síðuna fulla af góðu og innihaldsríku efni var ákveðið að leita til ykkar með greinar til birtingar á síðunni.

Greinaskrifin eru fyrst og fremst hugsuð sem efni til almennings um markþjálfun og marþjálfunartengdir punktar og hugmyndir. Allt sem gefur fólki innsýn í hvað markþjálfun er og hvað það er að vinna með markþjálfa munu eiga vel við. Allar tegundir markþjálfunar eru viðeigandi. Greinarnar geta innihaldið hvatningu, innblástur, hugmyndir, skref, ferli eða áskoranir. Greinarnar geta höfðað til sérstakra hópa t.d. foreldra um uppeldi, fólk á tímamótum, starfsmannamálefni, stjórnendur, hópar, sambönd og samskipti, heilsutengd málefni, fjármál, almenn lífsþjálfun eða hvaða sérhæfingu sem þið hafið þekkingu og áhuga á. Greinin verður að hafa áhugaverðan titil, t.d. „Hópmarkþjálfun í fyrirtækjum“, “Tíu leiðir að betri árangri” og þessháttar. Nýjar greinar jafnt sem greinar sem þið eigið til eru velkomnar. Með greinarskrifum getið þið komið ykkur á framfæri á heimasíðu félagsins og fáið til baka frá félaginu meira heldur en nafn ykkar skráð á síðuna.

Greinarnar þurfa að berast fyrir föstudaginn 9.desember á netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Einnig er stefnt að því að birta ljósmyndir og helstu upplýsingar af þeim markþjálfum sem eru í félaginu og megið þið þvi einnig senda inn ljósmynd af ykkur ásamt 1-2 setningum eða svo um ykkur , t.d. menntun og reynslu. Greinarnar verða svo tengdar við þann markþjálfa sem skrifar greinina.

Hafa ber í huga að styttri greinar eru betri en of langar þannig að hafið einfaldleikann í huga. Má hver markþjálfi hafa allt að tíu greinar inni á gagnagrunni síðunnar í einu.

Bjartar kveðjur,

María Lovísa og Anna María

LAST_UPDATED2
 
Ný stjórn starfsárið 2011-2012 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Anna María Þorvaldsdóttir   
Mánudagur, 30 Maí 2011 00:00

Á aðalfundi félagsins þann 3.mars s.l. var kosin eftirfarandi formaður og stjórn:


Linda Baldvinsdóttir, ACC vottaður markþjálfi er formaður

Birgir Jóhannesson, markþjálfi

María Lovísa Árnadóttir, Certified Transformational Life Coach

Jón Bjarni Bjarnson, ACC vottaður og NLP vottaður markþjálfi

Bryndís Torfadóttir, markþjálfi

Vildís Guðmundsdóttir, markþjálfi er gjaldkeri

Guðlaug Ó.Ólafsdóttir, ACC vottaður markþjálfi

 

Bjóðum þau velkomin til starfa og óskum þeim velfarnaðar í starfi fyrir félagið.

LAST_UPDATED2
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Könnun

Hver er reynsla þín af markþjálfun?
 

Hverjir eru á vefnum?

Það er/u 1 gestur inni