Forsíða Fréttir Félagsfundur febrúar 2010
Félagsfundur febrúar 2010 Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Ágætu félagar og annað áhugafólk um markþjálfun

Næstkomandi miðvikudag 24 feb. kl. 17 (kl. 5) í Gerðubergi stofu G á 1. hæð verður fræðslufundur FMÍ

Þar mun Hrefna Birgitta Bjarnadóttir, varaformaður FMÍ flytja fræðsluerindi um NLP (Neuro-Linquistic Programming) og Markþjálfun.
 

Hrefna Birgitta hefur yfir tuttugu og fimm ára reynslu sem meðhöndlari, markþjálfi og alþjóðlegur NLP-Kennari. Undanfarið ár hefur hún stýrt BTM-námskeiði (Breytingar-Tækifæri-Markmið) á vegum Vinnumálastofnunar, þar sem hún fléttar saman NLP og markþjálfun. BTM hefur skilað 85% atvinnuleitenda (viðmiðunarhópur með 100 fyrstu þátttakendunum) í vinnu eða nám og er það langbesti árangur námskeiða á þessu sviði.

Það sem einkum einkennir námskeið Hrefnu, fyrir utan mikinn árangur, er sú mikla gleði og kátina sem þar ríkir.
Hrefna Birgitta flytur til Danmerkur í næsta mánuði og mun starfa þar næstu árin. Nánari upplýsingar um hana má finna hér:  http://www.bruen.is/

Ég vil því hvetja ykkur öll til að nýta þetta einstaka tækifæri og fjölmenna í Gerðuberg.

Aðgangseyrir er 1.000,- kr. fyrir félagsmenn og 2.000,-kr. fyrir aðra
 

Könnun

Hver er reynsla þín af markþjálfun?
 

Hverjir eru á vefnum?

Það er/u 1 gestur inni