Innskráning
| Fræðslufundur janúar |
|
|
Hvað ert þú að gera í markaðs- og skipulags málefnum?Miðvikudaginn 12. janúar 2011 kl.8:30-9:45 förum við í heimsókn til Verkefnalausna í Hlíðarsmára 2, 201 Kópavogur. VerkefnalausnirElín Þ. Þorsteinsdóttir framkv.stj. Verkefnalausna, sem annast sölu og þjónustu á Mind Manager tekur á móti okkur. Elín mun kynna m.a. Hugkort sem nýtist markþjálfum mjög vel í starfi t.d. við verkefnastjórnun, skipulagningu, hugarflug, fundarstjórnun, upplýsingastjórnun, kynningar og skýrslugerð. Hægt er að ná sér í hugkort á netinu frítt í 30 daga. www.verkefnalausnir.is Umræður um sérhæfingu markþjálfaMarkþjálfar geta sérhæft sig á ýmsa vegu til þess að mæta þörfum ólíkra einstaklinga - en hvað eru markþjálfar að gera í dag varðandi sérhæfingar? Brita Berglund ACC vottaður markþjálfi og Master NLP mun ræða við okkur um sérhæfingu, en Brita hefur sérhæft sig í mentormarkþjálfun, en einnig í lífsmarkþjálfun. Spark í rassÁ fundinum verður kynning á námskeiðinu “Spark í rass”- Komdu þér og þínu á framfæri. Gefið verður smá sýnishorn af því sem koma skal á námskeiðinu þar sem áhersla er lögð á markaðssetningu fyrir markþjálfa og einyrkja. Einföld og árangursrík leið til að koma sér og sinni vöru/þjónustu á framfæri. Skráning fer fram á vef Dokkunnar www.dokkan.is eða Hér. Lendir þú í vandræðum með skráningu, endilega hafðu samband á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. |


