Innskráning
| Fræðslufundur í febrúar |
|
|
|
Í janúar var farið í heimsókn til Verkefnalausna og fengu þátttakendur kynningu á Mind Manager. Við þökkum starfsfólki Verkefnalausna fyrir góðar móttökur. Jafnframt fjallaði Brita Berglund ACC markþjálfi og Master NLP practitioner um sérhæfingu markþjálfa og komu nokkrar umræður í kjölfarið. Að lokum kynntu Rúna Magnúsdóttir og Anna M Þorvaldsdóttir markmið með námskeiði Spark í Rass...komdu þér á framfæri. Unnið er að fræðslufundi sem verður á dagskrá í febrúar. Nánari upplýsingar verða birtar um leið og hægt er. Minnum á samstarf félagsins við Dokkuna. www.dokkan.is en þar gefst félagsmönnum kostur á að skrá sig í alla hópa Dokkunnar auk hóp markþjálfunar. Allar hugmyndir að fræðsluefni fyrir markþjálfa og markþjálfunarfagið eru vel þegnar og senda má á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Stjórnin |


