Forsíða Fréttir Mars 2011hjá félaginu
Mars 2011hjá félaginu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Viðburðir á vegum Félags Markþjálfunar á Íslandi í mars 2011.

Mikið er um að vera í mars hjá félaginu eða þrír viðburðir, þeir eru:

Aðalfundur félagsins 
Fimmtudaginn 3.mars n.k. verðður aðalfundur félags markþjálfunar á Íslandi haldinn á Grand Hótel Reykjavík í sal Háteig B. Fundurinn hefst kl.8:00 og boðið er upp á morgunverðahlaðborð þar sem félagsmönnum gefst kostur á að spjalla saman. Aðalfundarstörf hefjast síðan kl.8:30 og er dagskrá fundarins skv. lögum félagsins um aðalfund.  Laus sæti verða í stjórn félagsins á komandi starfsári og eru félagsmenn hvattir til að mæta og gefa kost á sér í stjórn.

Markaðssetning markþjálfa
Laugardaginn 5. mars verður námskeið í markaðssetningu markþjálfa þar sem Rúna Magnúsdóttir ACC stjórnendamarkþjálfi og vottaður eldmóðsþjálfi og Anna María Þorvaldsdóttir stjórnendamarkþjálfi munu leiða námskeiðið.  Farið verður yfír hvernig markþjálfar geta skoðað og mátað sína sérhæfingu, farið yfir markhópinn sinn, skilgreint skilaboðin sem þeir vilja senda til markhópsins o.fl. Hvernig hægt sé að nýta samfélagssíður internetsins til kynningar og auglýsingar og auka þannig viðskipti sín.  Í lok námskeiðs er boðið upp á MasterMind hóp til að viðhalda þeirri þekkingu sem aflað hefur verið og með þátttöku aukast líkur á að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið í markaðssetningu.  Nánar um námskeiðið er hér.

Fræðslufundur félagsins
Fimmtudaginn 9.mars kl. 8:30-10:00 verður fræsðlufundur með Dokkunni. Sjá nánar um fundinn á vef Dokkunnar (www.dokkan.is).  

Áskoranir stjórnenda – af hverju nýta stjórnendur sér markþjálfun?

Unnur Valborg Hilmarsdóttir stjórnendamarkþjálfari hjá Vendum - stjórnendaþjálfun fjallar um hvaða áskoranir stjórnendur glíma við í dag og hvernig markþjálfun  nýtist þeim til að ná enn meiri árangri.

Unnur mun einnig leitast við að svara spurningum sem lúta að:

*framkvæmd markþjálfunarinnar, t.d. uppsetningu og val á markþjálfa
*Innanhússmarkþjálfar eða utanaðkomandi? Kostir og gallar hvort tveggja

 Gaman væri að fá umræður og frásagnir þátttakenda á fundinum.

 

Könnun

Hver er reynsla þín af markþjálfun?
 

Hverjir eru á vefnum?

Það er/u 5 gestir inni