Innskráning
| Siðareglur FMÍ 2009 |
|
|
|
| Skrifað af Bergsteinn Ísleifsson |
| Föstudagur, 08 Maí 2009 18:12 |
|
Siðareglur Félags markþjálfunar á Íslandi (FMÍ) Fyrsti hluti: Skilgreiningar
Til að skýrgreina hlutverk aðila í markþjálfunarsambandi þarf iðulega að greina milli viðskiptavinar og kostunaraðila. Oftast er viðskiptavinur og kostunaraðili sami einstaklingurinn og er þá einungis talað um viðskiptavin. En til að unnt sé að bera kennsl á hin ólíku hlutverk skilgreinir FMÍ þau á eftirfarandi hátt:
Í samningi um markþjálfun skal ætíð kveðið skýrt á um réttindi, hlutverk og skyldur bæði viðskiptavinar og kostunaraðila, séu þeir sitt hvor aðilinn. Annar hluti: Siðareglur FMÍFormáli: Markþjálfar leitast við að tileinka sér hegðun sem varpar jákvæðu ljósi á markþjálfun sem starfsgrein; bera virðingu fyrir mismunandi aðferðum við markþjálfun; og viðurkenna að þeir eru bundnir af lögum og reglum sem við eiga.
Kafli 1: Almennt um faglega framgöngu
Sem markþjálfi mun ég:
2) Gera nákvæma grein fyrir starfshæfni minni, sérfræðikunnáttu og reynslu sem markþjálfi, sem og viðurkenndum réttindum mínum og vottunum.
3) Virða störf og framlag annarra og ekki eigna mér þau ranglega. Ég skil að brot á þessari reglu geti leitt til lögsóknar af hálfu þriðja aðila.
5) Ætíð halda í heiðri siðareglur FMÍ er ég gegni hlutverki markþjálfa, leiðbeinanda eða handleiðara í markþjálfun.
7) Viðhalda og varðveita gögn er varða starf mitt sem markþjálfi, og farga þeim, þannig að fyllsta trúnaðar og öryggis sé gætt og viðeigandi lögum og samþykktum sé fylgt.
Kafli 2: Hagsmunaárekstrar
10) Greina viðskiptavini mínum og kostunaraðila viðkomandi frá hvers kyns þóknun frá þriðja aðila sem ég kann að hljóta eða greiða fyrir vegna tilvísunar til þriðja aðila. 11) Því aðeins semja um þjónustu/vöruskipti eða önnur hlunnindi að það spilli ekki markþjálfunarsambandinu.
12) Ekki vísvitandi ætla mér nokkurn persónulegan, faglegan eða fjárhagslegan hagnað af markþjálfunarsambandinu, nema þá þóknun sem kveðið er á um í samkomulagi eða samningi um markþjálfunina.
14) Ekki veita verðandi viðskiptavinum eða kostunaraðilum upplýsingar eða ráð sem ég veit eða held að séu villandi eða röng.
15) Gera skýrt samkomulag eða samning við viðskiptavina mína og kostunaraðila. Ég mun virða allt sem um er samið í tengslum við faglegt markþjálfunarsamband.
18) Ekki eiga í kynferðislegu sambandi við núverandi viðskiptavini eða kostunaraðila.
19) Virða rétt viðskiptavinarins til að rjúfa markþjálfunarferlið hvenær sem er, í samræmi við samningsákvæði. Ég skal vera vakandi fyrir merkjum um að viðskiptavinurinn kunni ekki lengur að hafa hag af markþjálfunarsambandinu.
20) Hvetja viðskiptavin eða kostunaraðila til breytinga ef ég tel að annar markþjálfi eða aðili gæti betur þjónað þörfum hans. 21) Leggja til að viðskiptavinur minn leiti þjónustu annarra fagaðila telji ég það viðeigandi eða nauðsynlegt. Kafli 4: Trúnaður og þagmælska
Sem markþjálfi heiti ég því að virða siðrænar og lagalegar skyldur mínar gagnvart viðskiptavinum mínum, kostunaraðilum, öðrum markþjálfum sem og gagnvart almenningi. Ég heiti því að halda í heiðri siðareglur FMÍ í starfi mínu sem markþjálfi.
Fjórði hluti: Meðferð brota á siðareglum.
26) Stjórn félagsins hefur eftirlit með að reglum þessum sé fylgt. Félagsmaður, eða eftir atvikum, aðili utan félags, getur vísað máli til stjórnar telji viðkomandi að markþjálfi hafi sýnt af sér hegðun sem brjóti í bága við siðareglur FMÍ. Stjórn vísar málum til siðanefndar félagsins.
27) Stjórn sker úr um ágreining um skilning á reglum þessum.
28) Félagsmanni er skylt, að boði siðanefndar, að gera viðhlítandi grein fyrir máli sínu vegna meints brots eða ágreinings um skilning á reglum þessum. Ber félagsmanni í því efni að svara og sinna afdráttarlaust fyrirspurnum og kvaðningum siðanefndar.
29) Siðanefnd getur veitt einstökum félagsmönnum áminningu eða beitt strangari viðurlögum eins og brottvísun úr félaginu.
(Íslensk þýðing úr ensku frá ICF ásamt staðfæringum. Leiðtogi ehf., Humus ehf., Karl Benediktsson o.fl.)
|
| LAST_UPDATED2 |
Siðareglur félagsins


