Innskráning
| Um félagið |
|
|
|
| Skrifað af Ragnheiður H. Magnúsdóttir |
| Fimmtudagur, 23 Október 2008 17:37 |
|
Samþykktir Félags markþjálfunar á Íslandi 1. gr. Heiti félagsins er Félags markþjálfunar á Íslandi (The Icelandic Coaching Association). Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
Félag markþjálfunar á Íslandi er félag þeirra sem starfa að þjálfun á Íslandi eins og hún er skilgreind í 3. gr.
Félag markþjálfunar á Íslandi er félag þeirra sem starfa við markþjálfun á Íslandi. Þ.m.t. stjórnendaþjálfun og lífsþjálfun. Félagar geta þeir orðið sem hafa lokið menntun og þjálfun á þessu sviði, sem viðurkennd er af alþjóðlegum eða evrópskum samtökum á þessu sviði. Einnig geta þeir orðið félagar sem hyggjast leggja stund á nám og þjálfun á þessu sviði.
Stjórn félagsins skal skipuð formanni og fjórum mönnum auk tveggja varamanna, sem kosnir eru á aðalfundi. Hlutkesti skal ráða ef atkvæði eru jöfn. Stjórnin er kosin til tveggja ára í senn, þó þannig að árlega ganga úr henni tveir stjórnarmenn. Formaður og varamenn auk tveggja skoðunarmanna eru kosnir til eins árs í senn. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum, á fyrsta fundi sínum, og kýs sér varaformann, ritara og gjaldkera. 5. gr. Stjórnin ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun félagsins, þ.m.t. fjármálum. Stjórn starfar samkvæmt umboði félagsmanna milli aðalfunda. 6. gr. Dagskrá aðalfundar: Starfsár stjórnar félagsins er milli aðalfunda og reikningsár er almanaksárið. Félagsmenn skulu greiða árgjald til félagsins sem aðalfundur ákveður fyrir eitt ár í senn. Stjórn félagsins getur tekið af félagaskrá þá sem skulda árgjald fyrir eitt ár enda hafi þeir áður verið skriflega krafðir um greiðslu og þeim kynntar þessar afleiðingar vanskilanna. 8. gr. Formaður boðar stjórnarfundi eftir því sem þurfa þykir, en skylt er að boða til stjórnar-funda innan tveggja vikna þegar einhver stjórnarmanna krefst þess. Stjórnarfundir eru því aðeins lögmætir að þrír stjórnarmenn hið fæsta, eða varamenn í forföllum þeirra, sæki fundi. 9. gr. Breytingar á lögum félagsins má aðeins gera á aðalfundi. Breytingartillögur skal kynna í fundarboði og teljast þær því aðeins samþykktar að eigi minna en 2/3 fundarmanna greiði þeim atkvæði. 10. gr. Um slit félagsins gildir það sama og um lagabreytingar. Fundur sá sem samþykkir á lögmætan hátt að slíta félaginu kveður á um hvernig ráðstafa skuli eignum þess til góðgerðamála. 11. gr. Þannig samþykkt á stofn félagsfundi þann 12. desember 2006. |
| LAST_UPDATED2 |
Um félagið


