Innskráning
| Um markþjálfun (Coaching) |
|
|
|
|
Hvað er markþjálfun? Markþjálfun er leið til að laða fram það besta í fólki. Henni er hægt að beita á ýmsa vegu bæði tengt vinnu og einkalífi. Executive coaching hefur verið nefnd stjórnendaþjálfun eða stjórnendaráðgjöf á íslensku og miðar sérstaklega að því að bætra árangur stjórnenda. Í life coaching eða lífþjálfun er einkum unnið með viðfangsefni tengd einkalífinu.
Hvað þarf til að verða markþjálfi? Til að verða markþjálfi þarf að læra aðferðafræði markþjálfunar. Hana er hægt að læra á ýmsan máta á Íslandi og erlendis og nálgunin getur verið ólík eftir því hvar og hvernig er kennt. Grunnurinn er hins vegar alltaf sá sami: Virk hlustun og opnar spurningar.
Hver er góður markþjálfi? Til að verða góður markþjálfi þarf einstaklingur að hafa þolinmæði og samhyggð og raunverulegan áhuga á því að aðstoða þann sem hann er að þjálfa. Það er kostur að markþjálfi hafi einhverja reynslu tengda því sem hann vinnur með, en það er þó ekki nauðsynlegt.
Hvernig velur maður markþjálfa? Fyrst og fremst skiptir máli að hafa nokkra hugmynd um hverju maður vill ná fram með markþjálfuninni því markþjálfar sérhæfa sig í mismunandi verkefnum. Sumir vinna einkum með stjórnendum, aðrir einkum með þeim sem vilja ná markmiðum í einkalífinu. Að öðru leyti er gott að spyrjast fyrir og heyra í öðrum sem farið hafa til markþjálfa og alltaf er nauðsynlegt að spyrja markþjálfann hvar hann hefur hlotið þjálfun. Loks er mikilvægt að átta sig á því að það sem hentar einum, hentar ekki endilega öðrum.“Drauma” markþjálfi er sá sem kann að hlusta, spyrja réttu spurninganna og nær góðu sambandi við þig. Þess vegna er alltaf nauðsynlegt að spyrja eftir fyrsta tímann: Treysti ég þessari manneskju? Vil ég halda áfram að vinna með henni/honum?
Hver er ástæðan fyrir auknum vinsældum markþjálfunar? Ástæðan fyrir því að markþjálfun hefur fest sig í sessi á undanförnum árum beggja vegna Atlantshafsins og nýtur vaxandi vinsælda hér á landi er einfaldlega sú að hún skilar árangri. Þeir sem notið hafa góðrar markþjálfunar, hvort sem er í tengslum við störf sín eða í einkalífi segja hana framúrskarandi tæki til að ná markmiðum og breyta hegðun eða einfaldlega að hugsa lífið upp á nýtt.
Hver er hagur fyrirtækis/stofnunar af því að starfsmenn fari í markþjálfun? Þegar vel tekst til með markþjálfun verður góður starfsmaður ennþá betri, vandamál leysast og breytingar ganga betur fyrir sig. Markþjálfun getur verið leið til að bæta hæfni, vellíðan og ánægju góðra starfsmanna en hún getur líka verið leið taka á vandamálum sem upp koma og eru tengd einstaklingum og samskiptum. Loks er markþjálfun mikið beitt til að vinna með fólki í gegnum breytingar.
Hvaða viðfangsefni eru hluti af markþjálfun? Meðal viðfangsefna í stjórnenda- eða starfsmannaþjálfun má nefna einstaka þætti eins og að bæta hæfni t.d. í því að halda fyrirlestra eða venja sig af slæmri hegðun s.s. að beita aðra yfirgangi. Önnur viðfangsefni geta verið hvernig á að taka á erfiðum starfsmannamálum eða vinna í gegnum starfstengdar breytingar. Stundum fara stjórnendur í markþjálfun til að bæta stjórnun sína almennt eða ræða um hvert þeir vilja stefna varðandi starfsframa. Viðfangsefni í markþjálfun geta líka verið tengd einkalífi, hvort sem það snýst um að ná markmiðum varðandi peningamál, hjónaband, barnauppeldi, áhugamál, líkamsrækt eða hvers konar sjálfsþroska.
Hvaða hag hafa einstaklingar af markþjálfun? Markþjálfun gefur fólki tækifæri á að skoða sjálfan sig, störf sín og hegðun í fullum trúnaði með annarri manneskju sem til þess hefur hlotið sérstaka þjálfun. Það er þroskandi, lærdómsríkt og skemmtilegt. Markþjálfun getur hjálpað einstaklingi að ná betri árangri í starfi, bæta samskipti hvort sem er í vinnu eða einkalífi, ná markmiðum og auka lífshamingju.
Af hverju markþjálfun? Markþjálfun er fyrir þá sem vilja horfast í augu við sjálfa sig, hvort sem það er til að bæta það sem þarf að bæta, velta upp nýjum möguleikum, fá stuðning í erfiðum ákvörðunum eða einfaldlega að gefa sjálfum sér klapp á bakið fyrir það sem vel er gert. Með markþjálfun fá einstaklingar stuðning frá fólki sem hefur þjálfað sig í að hjálpa öðrum að finna sínar eigin lausnir, hefur ekki önnur markmið en þau að hjálpa viðskiptavini sínum, og vinnur í fullum trúnaði.
|
Um markþjálfun


